Jæja þá er komið að þessu! Að þessu sinni
verður gleðskapurinn haldinn í Kíwaneshúsinu í Mosfellsbæ
þann 14 apríl.
Gæðakokkar munu bera fram glæsilegt steikarhlaðborð með öllu
tilheyrandi (forréttir og aðalréttur). Þar sem enginn bar er á
staðnum verður hver og einn að koma með sín eigin drykkjarföng,
sem verða að endast kvöldið 
Hið sívinsæla diskótek
Ó-Dollý, sem er
víst að gera allt vitlaust þessa dagana mun þeyta skífum fram á
rauða nótt!
Herlegheitin kosta aðeins 4000 kr, sem er gjöf en ekki gjald
fyrir gleðskap sem þennan 
Það eina sem þú þarft að gera er að setjast fyrir framan næstu
tölvu fyrir 20 mars, fara á heimabankann og millifæra inn á
reikning 0549-14-602582 kt. 020782-3079. Hafir þú ekki aðgang að
heimabanka er að sjálfsögðu hægt að droppa við í næsta banka.
(endilega skrifið nafnið ykkar í skýringu við greiðslu).
Húsið mun opna á slaginu kl. 19:00 og hefst borðhald kl.
20:00. Makar eru velkomnir eftir matinn eða um kl. 22:00 gegn
þúsundkróna aðgangseyri (sem leggjast skal inn á sama
reikning).
Öll viljum við að þessi stórviðburður verði sem eftirminnilegastur
og því er nauðsynlegt að sem flestir láti sjá sig

Ef þú lumar á einhverju glensi eða liggur eitthvað á hjarta hafðu
þá endilega samband við Evu Ósk í síma 865-5211 eða Helenu í síma
867-1330. eða sendið tölvupóst á gretarogeva@torg.is eða helegun@hi.is
Hlökkum til að sjá ykkur!!

Endilega kommentið á færsluna svo við vitum
hverjir hafa lesið þetta, þá þurfum við ekki að senda ykkur
bréf í pósti 